BAÐLÍNAN
  • Um okkur
  • Heildarlausnin
  • Panta skoðun
  • Efnisval
    • Flísar
    • Innréttingar
    • Handlaugar
    • Blöndunartæki
    • Ljósaspeglar
    • Salerni
    • Niðurföll
    • Sturtusett
    • Sturtugler
    • Handklæðaofnar
    • Baðkör
    • Baðtæki
    • Baðgler og flipper
  • Myndir
  • Heitir Pottar
    • Viskan Lindö - 8 manna
    • Viskan Ekerö - 6 manna
    • Viskan Björkö - 7 manna
    • Viskan Asperö - 6 manna
  • Iðnaðarlínan
  • Fréttir
  • Innskráning

Efnisval

Baðlínan mælir með eftirfarandi vörum fyrir okkar viðskiptavini í vali á efni fyrir baðherbergið, en við bjóðum upp á að versla allar þær vörur sem þarf fyrir verkið í gegnum Baðlínuna, þ.e.a.s. í samvinnu við þekktar verslanir á markaðnum, en vöruúrvalið saman stendur af vönduðum vörum í flísum, speglum, blöndunartækjum, sturtutækjum, salernum, sturtuglerum, innréttingum, vöskum, baðkörum, niðurföllum, handklæðaofnum o.s.frv. frá Tengi, Agli Árnasyni, Íspan og Fanntófell.

Við mælum jafnframt með því að viðskiptavinir okkar komi við hjá Agli Árnasyni, Tengi, Íspan og Fanntófell, skoði úrvalið og taki myndir af þeim vörum sem þeim líst vel á og sendi á Baðlínuna, en ef það eru t.d. aðrar vörur sem ykkur líst betur á en þær sem við mælum með, þá er minnsta mál að setja þær inn í valið á efninu sem kemur í gegnum Baðlínuna.

Eins er gott að skoða hugmyndir og vöruúrval út frá verkum sem hafa verið unnin af Baðlínunni, en hluta af þeim má sjá undir Myndir af verkum og einnig á Facebook eða Instagram síðu Baðlínunnar.

Iðnaðarefni fyrir uppbyggðan sturtubotn, smíðaefni utan um baðkar og salerniskassa, undirefni fyrir flísalögn o.s.frv. stillum við jafnframt upp með efnisvalinu í byrjun.
​
En efnisvalið sem við mælum með skoðar þú í undirflokkunum á þessari síðu (setja bendilinn yfir flokkinn "Efnisval").
​
Picture
Picture
Picture
Picture
Heildarlausnir fyrir baðherbergið! 
Baðlínan - Iðnaðarlínan ehf. / Sími: 618-6011 / Kt: 540313-1210 / Vsk nr.: 113467 / www.badlinan.is / badlinan@badlinan.is