Netverslun
Í netverslun Baðlínunnar bjóðum við upp á allar þær vörur sem þarf fyrir endurnýjun á baðherberginu.
Við höfum stillt upp vinsælum vörum úr verkum sem unnin hafa verið af Baðlínunni í samvinnu við þekktar verslanir á markaðnum eða okkar samstarfsaðilum með það að markmiði að allir geti keypt á einum stað þær vörur sem þarf fyrir baðherbergið!
Vöruúrvalið saman stendur af vönduðum vörum í flísum, flísaefnum, sturtuniðurföllum, sturtutækjum, sturtuglerjum, salerniskössum, salernum, þrýstispjöldum, handklæðaofnum, retúrum, innréttingum, vöskum, blöndunartækjum, speglum, speglaskápum og baðkörum.
Ef þú vilt skoða vörurnar inn á baðherbergi (við erum eingöngu með netverslun), þá er hægt að skoða myndir af verkum hér á síðunni sem hafa verið framkvæmd af Baðlínunni og einnig á Facebook eða Instagram síðu Baðlínunnar.
Þegar pöntunin hefur verið send til Baðlínunnar þá höfum við samband í framhaldi og förum yfir hana með viðskiptavininum til að staðfesta að valið og magnið sé í lagi, fjárhæð pöntunar og að varan sé til á lager. Í framhaldi af staðfestri pöntun viðskiptavinar þá er gerður reikningur, krafa stofnuð í heimabanka til greiðslu og varan sett í sendingarferli.
Afhending á vörum fer fram tvisvar í viku eða á þriðju- og föstudögum, en pantanir sem berast fimmtudaga - sunnudaga eru keyrðar út á þriðjudögum og pantanir sem berast mánudaga - miðvikudaga eru keyrðar út á föstudögum.
Við sendum um allt land, en pantanir á höfuðborgarsvæðinu eru sendar heim að viðkomandi húsnæði (burður er ekki innifalinn), en fyrir landsbyggðina á viðkomandi flutningsstöðvar sem flytja vörurnar út á land (kostnaður hjá viðkomandi flutningsstöð greiðist af kaupanda).
Flutningskostnaður á höfuðborgarsvæðinu sem greiðist af kaupanda er 9.900 kr. fyrir pantanir í netverslun.

Heildarlausnir fyrir baðherbergið!